Leit

Auglýsing

Leikur dagsins

Góđan og blessađan og til hamingju María

24. maí 2006 klukkan 22:46
 Skemmtileg ferð til rvk að bakai og allir kominir heilir heim.  Fór suður á miðvikudagskvöldið dundaði mér í borginni og fram á föstududag og þá skellti maður sér í fínu fötin og fór í útskrift hjá henni maríu og mín var best þar svosem ekki við öðru að búast vel gefin stelpa þar á ferð. Haldið var svo í hafnarfjörðinn þar sem að partíið var haldið ekki slæm veisla það skötuselur og kongakrabbi í forrétt og okkar ástkæra íslenska Lambakjöt í aðal. Eftir mikla veislu var svo skundað niður í bæ með smá viðkomu hjá honum Badda mínum eftir smá spjall þar var strikið tekið á gaukinn þar sem að mikil tónlistarveisla var íþann mund að hefjast strákarnir í cor byrjuðu leikinn og svo tók BMX við flott hjá þeim þó svo að ég hefði viljað sjá fleiri mæta en það er ekki allt eins og maður vill en samt flest, þó svo að morgundagurinn hafi ekki verið eins og ég hefði viljað fór frammúr um hádegi og viti menn bara nokkuð hress...... stuttu seinna og kominn útí bíl og klárað að snatta aðeins í Reykjavík  og ekki lengur hress helltist yfir mig þessi óhuggnalega flugveiki og þakka ég vinimínum þarna uppi að hann Halli hafi hringt og beðið um far vestur því þar var ég kominn með bílstjóra stuttu seinna var minn sofnaður og mig dreymdi bara nokkuð vel alla ferðina heim vaknaði bara svo nokkuð hress á the Waterway..

Skellti mér þarna um kvoldið í sælkerasiglingu með Sæferðum ásamt 10 blaða og frétta mönnum frá USA voru hérna að skoða fallega bæinn okkar flott sigling það var svo bara kominn upp í rúm um 12 leitið o hvað það var gott.  


Sunnudagurinn var svo tekinn snemma var kominn af stað með blaðamennina fyrrnefndu af stað til borgarness kl: 10... eftir smá rúnt um bæinn og heimsókn í kirkjuna okkar. Þegar í borgarnes var komið lá leiðin í Reyka Vodka verksmiðjuna flott verksmiðja og fínasti drykkur og jú þar er líka tappað á alla þessa ópaldrykki og fleyra. Út að borða í hádeginu á hótel Hamar og svo á eitthvað víkingasafn alveg gríðarlega skemmtileg ferð og ég aftur orðinn þreyttur húkkaði mér far úr Borgarnesi eftir að hafa knúsað þetta fólk bless og vil ég þakka honum Gumma Gussa fyrir farið......... takk og bless í bili


yfir

Kristján Lár
Engin athugasemd

ćtlar engin ađ kvitta

19. maí 2006 klukkan 05:09

ætlar enginn að kvitta fyrir heimsóknina eða kvað!!!!!

kveðja....

SKÚLI FÚLI!

yfir

Kristján Lár
6 athugasemdir

Ćtli ég bloggi ekki smá svo sumir fari ekki ađ vćla.

17. maí 2006 klukkan 04:07
Já bara kominn heim snemma þetta kvöldið og ætla að taka mér frí það sem eftir lifir þessari viku fara suður á morgun sinna fullt af erindum og slappa af í baði og allt.  Mana sín er að fara að útskrifast á föstudaginn stelpan bara með topp einkunnir níu og tíu í öllu til hamingju með það. Svo er sveitaballið marg um talaða á gauknum ætli maður renni ekki við þar og sjái stjörnurnar. Uss ekki má gleyma honum nemó litla ætlum að renna við á skaganum á morgun og sjá kallinn þetta verður að duga í bili nenni ekki að skrifa meira takk og bless. 


yfirSvalur
Kristján Lár
1 athugasemd

Sveita Ball í borginni

15. maí 2006 klukkan 17:44

Þeir sem að væblast hingað inn og eru staddir í rvk a.k.a borg óttans eða koma til með að vera þar um næstu helgi ættu ekki að hugsa sig frekar um og skella sér í dansi skóna reyma fast og fara á dansleik á gauk og stöng með stórhljómsveitunum BMX og COR  hver man ekki eftir lögum eins og leysist upp og 15000 fet heheh. En allavega þá er þetta möst eða verð´að mæta ball fyrir stuð bolta eins og ykkur...

 

Og ekki nóg með það heldur rennur aðgangseyririnn beinnt í flott málefni.......

Hver veit nema bix og félagar mæti í kiss gallanum ?? maður spyr sig takk og bless

 

yfir
Kristján Lár
5 athugasemdir

Góđan og blessađan

15. maí 2006 klukkan 13:36
 

 Þá hefur svo sem ekkert gerst hjá mér nema nokkrir skemmtilegir dagar í vinnunni. Búð að vera rosalegt veður undanfarið og maður hefur reynt að nýta það eins og maður getur. Fór aðeins á lífið á laugardaginn var búin að vinna um 1230 og við Steini skelltum okkur á Fiskana og auðvitað kom Don peppe með. Þar var voða rólegt og gott.  Svo var ég bara kominn snemma heim og svaf svo út gott það... fór svo bara að vinna og skellti mér í siglingu í gærkveldi með strákonum spegilsléttur sjór og ég veit ekki hvað og hvað

svo vil ég sjá einhver komment.  asnalegt að sjá á teljaranum fullt af heimsóknum og enginn kvittar.......


yfir
Kristján Lár
1 athugasemd

Ţessi fallegi dagur

09. maí 2006 klukkan 20:18
Eins og ég sagði í síðasta pistli að þá er hólmurinn búinn að heilla mig.Þessir síðustu nokkrir dagar hafa bara verið góðir frábært veður og ég veit ekki hvað og hvað.  Las bloggið hjá henni birnu í gær og vá hvað ég er sammála henni stelpunni.  Þessar minningar sem að maður hefur úr (gamladaga) ég má nú ekki segja gamladaga því ég er svo ungur jæja nóg um það. Þegar það var sumar og enginn skóli á daginn. Var þetta voða einfalt maður bara vaknaði og fór út lék sér og kom svo dauð þreyttur heim á kvöldin og engin hafði áhyggjur af manni.  Rétt eins og birna gerði þá rifjaði hún það upp sem að hún gerði þegar hún var yngri og snilldar blogg hjá henni,  en ég ætla að fá að eiga það ynni að koma með svona langt blogg eða bara að eiga þessar minningar sjálfur   blabla,,,María er á leiðinni og það er betra hún ætlaði að koma við á skaganum að skoða snata minn svo bíður maður bara og bíður eftir húsinu....

 
yfir
Kristján Lár
3 athugasemdir

Stykkishólmur alla ćfi

08. maí 2006 klukkan 12:10

"Elsku mamma og pabbi.
Vildi bara láta ykkur vita að hér í stykkishólmi er frábær sundlaug og íþróttaaðstaða.  Við skelltum okkur í golf, förum út að borða á hverjum degi, aldrei á sama staðinn.  Þess á milli höfum við nóg fyrir stafni og nú kunnum við að róa kajak, jibbí!.  Tónleikarnir í kirkjunni voru æðislegir og ekki spillir að hér er svo undur fallegt innan um öll þessi gömlu hús.  Þið komið svo með okkur á Danska daga í ágúst, við ætlum að tjalda, tjaldsvæðið er með öllum þægindum mamma finnur örugglega góðan gisti stað því af þeim er hér nóg.  Þið getið farið á www.stykkishólmur.is og fengið að vita meira.  Stykkishólmur er búinn að heilla okkur uppúr skónum!!"

                            xxx góðu börnin ykkar

Kristján Lár
6 athugasemdir

Frábćrar uppl.

07. maí 2006 klukkan 11:42
  1. TYPEWRITER er lengsta orðið sem er hægt að skrifa með bara einni línu á lyklaborðinu.
  2. Marilyn Monroe var með sex tær á vinstri fæti.
  3. Árlega deyja um 100 manns af völdum kúlupenna.
  4. Þegar Coca Cola kom fyrst, þá innihélt það kókaín og var grænt á litinn.
  5. 40% af hagnaði McDonald's fæst með sölu barnaboxa.
  6. Það eru meiri líkur á að þú munir deyja af völdum korktappa úr freyðivínsflösku en af köngulóarbiti.
  7. Bandarísk flugfélög týna samtals 200 töskum á meðaldegi.
  8. Yngsti páfi sögunnar var 11 ára.
  9. Mest notaða lykilorð í sögu upplýsingatækninnar er "password".
  10. Kengúrur geta ekki gengið aftur á bak.
  11. Fiðrildi finna bragð með fótunum.
  12. Þegar maður hnerrar þá þenst munnurinn á manni út á yfir 1000 km hraða.
  13. Flær geta stokkið 350-falda lengd sína. Fyrir mann væri það eins og að stökkva yfir heilan fótboltavöll.
  14. Á meðaldegi slasast 40 manns á trampolíni.
  15. Í flestum klukkuauglýsingum er klukkan 10:10.
  16. Það eru 1.792 þrep í stiganum í Eiffel turninum.
  17. Búnaðurinn sem notaður er á flugmóðurskipum til að koma flugvélunum í loftið gæti fleygt vörubíl tvo kílómetra.
  18. MTV fór fyrst í loftið á miðnætti þann fyrsta águst 1981. Fyrsta myndbandið var "Video Killed the Radio Star" með Buggles.
  19. Hægra lunga mannsins getur geymt meira loft en vinstra lungað.
  20. Risakolkrabbar hafa stærstu augu í heimi.
  21. Í Los Angeles eru fleiri bílar en íbúar.
  22. Aðeins 55% Bandaríkjamanna vita að sólin er stjarna.
  23. Á Nýja Sjálandi eru um 70 milljónir kinda en 4 milljónir manna.
  24. Lengsta eins atkvæðis orðið í ensku er "screeched".
  25. Sumar tegundir af gervirjóma eru eldfimar.
  26. Efnablandan í dýnamíti inniheldur meðal annars hnetur.
  27. Það er til PEZ með kaffibragði.
  28. Þrjár stærstu blaðaútgáfur heims eru Rússneskar.
  29. Stærstu korktappaframleiðsluríki heims eru Spánn, Portúgal og Algeria.
  30. Á löglegri golfkúlu eru 336 dældir.
  31. Nútímamaðurinn hefur minni heila en Neanderdalsmaðurinn hafði.
  32. Græna kortið, sem Útlendingaeftiriltið í Bandaríkjunum gefur út, hefur ekki verið grænt síðan 1964.
  33. Bandaríkjamenn borða yfir 7 hektara af Pizzum á dag.
  34. Kattahland glóir í blacklight.
  35. Meðalmaðurinn er 7 mínútur að sofna á kvöldin.
  36. Meðalmaður hlær 15 sinnum á dag.
  37. Konur blikka augunum nærri tvöfalt oftar en karlmenn.
  38. Kettir hafa 32 vöðva í hvoru eyra.
  39. Á World Trade Center voru 43.600 gluggar.
  40. Krókódílar geta hvorki hreyft tunguna né tuggið. Meltingarkerfi þeirra getur þó melt stálnagla.
  41. Fjórðungur Bandaríkjamanna vita ekki í hvaða stjörnumerki þeir eru.
  42. 68% Bandaríkjamanna sem horfa á auglýsingar frá örgjörvaframleiðendum halda að betri örgjörvi auki hraðann á internettengingu þeirra. Það er rangt.
  43. Í Ohio er ólöglegt að veiða mýs án veiðileyfis
  44. Ein af hverjum 3 kúm í Bandaríkjunum enda sem McDonalds hamborgarar.
  45. Einn af hverjum 2.000.000.000 jarðarbúum nær 116 ára aldri
  46. 70% Bandaríkjamanna hafa komið í Disney World
  47. Fyrsti eigandi Marlboro sígarettuverksmiðjanna dó úr lungnakrabba.
  48. Stærsti skóli heims er barnaskóli á Filippseyjum. Þar eru um 25.000 nemendur.
  49. Allar klukkur í myndinni Pulp Fiction eru alltaf stilltar á 4:20.
  50. Meirihluti alls ryks í heimahúsum er myndað úr dauðu skinni.
  51. 40% kvenna hafa fleygt skófatnaði í karlmenn.
  52. Á fjórða áratug nítjándu aldar var tómatsósa seld sem meðal.
  53. Það er hlutfallslega meira af óbyggðum svæðum í N-Ameríku en Afríku.
  54. Langa sms hljóðið í Nokia farsímum er morse kóði sem merkir "SMS" (··· -- ···)
  55. Minnsta leðurblaka í heimi vegur minna en tíkall.
  56. Það eru fleiri kjúklingar en menn í heiminum.
  57. Ef gullfiskur er hafður í myrkri þá verður hann á endanum hvítur.
  58. Í New York eru 25% líkur á hvítum jólum
  59. Annar hver unglingspiltur vill frekar vera ríkur en klár.
  60. Einn af hverjum 4 Bandaríkjamönnum hafa sést í sjónvarpinu.
  61. Í Ástralíu eru um 150 milljónir kinda en 17 milljónir manna.
  62. Meðalmaður ýtir þrisvar sinnum á "snooze" takkann á vekjaraklukkunni sinni á hverjum morgni.
  63. Mikki mús fékk yfir 800.000 aðdáendabréf árið 1933.
  64. Tveir af hverjum 5 jarðarbúum búa á Indlandi eða í Kína
  65. Kettir geta myndað yfir 100 mismunandi hljóð.
  66. Það eru að meðaltali 178 sesamfræ á einum Big Mac
  67. Það er ólöglegt að fara yfir landamæri Minnesota með önd á hausnum.
  68. Meðalmaður í vestrænum ríkjum flytur á sjö ára fresti.

  69. Maður brennir 150 kaloríum á klukkustund við að berja hausnum í vegg.
  70. Í Carnegie Mellon háskólanum er boðið upp á sekkjapípuleik sem aðalfag.
  71. Einn af hverjum átta Bandaríkjamönnum hafa einhverntíma unnið fyrir McDonalds.
  72. Háskólinn í Calgary býður upp á 2ja daga námskeið í byggingu snjóhúsa.
  73. Meðalbarn notar 730 mismunandi vaxliti fyrir 10 ára aldur.
  74. Fyrirmyndin að fyrstu skíðalyftu í heimi var tæki sem hleður bönunum í flutningaskip.
  75. 7% Bandaríkjamanna segjast borða á McDonalds á hverjum degi.
  76. Ísbirnir eru örvhentir
  77. Meiri ljós háralitur er seldur í Dallas en nokkri annarri borg.
  78. Andrés Önd var bannaður í Finnlandi því hann gekk ekki í buxum. Andrés er önd.
  79. Á hverju ári deyja um 13 manns með því að verða undir sjálfsala.
  80. Flestir Amerískir bílar flauta í tóninum F.
  81. Stærsti rúllustigi í heimi tilheyrir Leningrad lestakerfinu í rússlandi og er hæðarmunurinn 60 metrar.
  82. Blár er uppáhaldslitur 80% bandaríkjamanna.
  83. Í Kaliforníu hafa verið gefin út 6 ökuskírteini á nafnið Jesus Christ.
  84. Það er ekki hægt að hnerra með opin augun.
  85. Átjánda þekktasta lykt í heiminum er lyktin af vaxlitum.
  86. Reykingar eru vinsælasta umfangsefni tölfræðirannsókna.
  87. Winston Churchill fæddist á dansleik
  88. Flugfélagið American Airlines sparaði 40.000 bandaríkjadali á árinu 1987 með því að sleppa einni ólífu úr hverju salati sem var borið fram á fyrsta farrými.
  89. 10% af tekjum rússneska ríkisins fást með vodkasölu
  90. Fyrsta vörutegundin til að vera strikamerkt var Wrigleys tyggjó.
  91. Mörgæsir geta stokkið 2 metra upp í loftið.
  92. Sumar tannkremstegundir innihalda frostlög.
  93. Á hverju ári slasast um 8.000 manns af völdum tannstönglanotkunar.
  94. Ef Bandaríkjamenn myndu minnka kjötneyslu sína um 10% og sparnaðinum yrði varið í hrísgrjón og sojabaunir þá myndi það duga til að brauðfæða 60 milljón manns, sem er fjöldi þeirra sem deyja úr hungri árlega.
  95. Kakkalakkar geta lifað í 9 daga afhöfðaðir en eftir það deyja þeir úr hungri.
  96. Í hverjum þætti af Seinfeld má sjá orðið "Superman" og/eða mynd af ofurhetjunni.  
  97. Helmingur jarðarbúa er innan við 25 ára.
  98. Snigill getur sofið í þrjú ár samfellt.
  99. Örbylgjuofninn var fundinn upp þegar vísindamaður gekk fram hjá radarsendi og súkkulaðistykki bráðnaði í buxnavasnum hans.
  100. Ef monopoly er spilaður án þess að neinn leikmaður kaupi neitt þá endar leikurinn á því að bankinn fer á hausinn.
  101. Móðir Adolfs Hitlers hafði velt því alvarlega fyrir sér að láta eyða fóstrinu en læknirinn fékk hana til að hætta við.
  102. Á þriggja mínútna fresti er tilkynnt um fljúgandi furðuhluti. Líklegast er að sjá þá í júlí, klukkan 3 að nóttu eða 9 að kvöldi.
  103. Mohammed er algengasta nafn í heimi
  104. Það eru 1.575 þrep í stiganum upp að efstu hæð Empire State byggingarinnar.
  105. Maður brennir fleiri kaloríum sofandi en horfandi á sjónvarp.
  106. Karlmenn geta lesið smærra letur en konur, en þær heyra betur.
  107. 7% Bandaríkjamanna halda að Elvis sé enn á lífi.
  108. Franskar kartöflur spanna þriðjung af kartöflusölu í heiminum.
  109. Flest innbrot í hótelherbergi eru framin á annari til sautjándu hæð.
  110. Ostrur hafa stærri augu en heila.
  111. Enginn fékk friðarverðlaun Nóbels árið 1972.
  112. Líkurnar á því að verða fyrir eldingu einhverntíma á ævinni eru 1 á móti 600.000.
Kristján Lár
Engin athugasemd

hć aftur

04. maí 2006 klukkan 16:58
þetta er allt að koma

verið þið róleg börnin mín

yfir
Kristján Lár
Engin athugasemd

Blogglausir páskar/ Lappalausir páskar

20. apríl 2006 klukkan 00:07
Já maður er búinn að vera frekar lélegur yfir páskana eða kannski bara búinn að hafa það gott held bara svei mér þá að þetta sé í fyrsta sinn síðan fyrir páska sem ég sest fyrir framan tölvuna sem er bara hið besta mál, því endalaust gláp á þennan skjá er ekkert hollt og hanann nú.  Skellti mér á æfingu  á miðvikudaginn fyrir páska rosa gaman en viti menn maður fer aldrei nógu varlega eitt hopp og ég mis steig mig, ekki gaman það ég uppá sjúkrahús var myndaður í bak og fyrir ekkert brot en slæmt var það samt. Það var ekkert annað í stöðunni en að fara út á hækjum þetta er vont en það venst og orðin bara nokkuð góður. Páskarnir voru rólegir lá með tærnar upp í loft og kvartaði undan verk í ökklanum borðaði popp og sá eina ef ekki bara 5 dvd myndir og jafnvel fleiri svo kom að loksins kom föstudagur já þessi langi, spenna í loftinu enda afmælisteiti það kvöld kiddi hélt svaka veislu flottur matur og bara nokkuð gaman ég mætti auðvitað með hækjuna (stafinn) og svo maríu (konuna) nei bara svo að fólk fari ekki að rugla þessu saman. Djók hún er sko enginn hækja búinn að vera voða góð við slasaða strákinn.... nó um það eftir afmælið var farið  niður á fiskana og eitthvað tjúttað þar, ég tjúttaði ekkert var bara í því að passa mig í troðningnum að  enginn færi nú að traðka á löppinni minni...  vöknuðum svo og skelltum okkur í bíltúr í góðaveðrinu og fórum uppí Borgarfjörð í sumarbústað og hittum þar fólkið hennar Maríu, mjög gaman og gott að borða svo fórum við aftur heim um kvöldið og tók við video gláp og popp át. Daginn eftir var svo matar boð hjá ömmu og afa og klikkar það nú seint held bara aldrei... Sumardagurinn 1. á morgun hamingja það held nú samt að það eigi eftir að snjóa smá,,, maður veit aldrei, og já ekki má gleyma skírnarpartíinu hjá Halla og Birnu á morgun og Birna ef þú sérð þetta þá vil ég minna á mig veist hvað ég meina.......... 
Munið að kvitta !!!!!!Öskrandi
 
yfir  Svalur
Kristján Lár
5 athugasemdir